Öflugur grunnur
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) er reistur á grunni öflugrar rannsóknastofnunar og tveggja gróinna menntastofnana á landbúnaðarsviði, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins (Rala), Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi. LbhÍ tók til starfa í upphafi árs 2005.
Skóli lífs og lands
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur mikla sérstöðu meðal háskóla hérlendis. Þessi sérstaða felst fyrst og síðast í viðfangsefni skólans sem er náttúra Íslands – nýting, viðhald og verndun. Viðfangsefni kennslu og rannsókna við LbhÍ er því landið og það sem á því lifir. Á stundum er sagt að LbhÍ sé Skóli lífs og lands sem er réttnefni.
Sérstaða
Landbúnaðarháskóli Íslands er lítill háskóli sem einnig markar honum sérstöðu. Andrúmsloft kennslunnar og félagslífsins verður þar af leiðandi mun persónulegra en ella enda mikið um hópavinnu og sameiginlega úrlausn verkefna. Námsbrautir skólans eru einungis í boði við LbhÍ en brautirnar eru hvort tveggja á starfsmennta- og á háskólasviði og er mikil samlegð á milli skólastiganna.
Starfsstöðvar
Nám á háskólabrautum og í búfræði er kennt á Hvanneyri í Borgarfirði og á Keldnaholti. Nám á garðyrkjubrautum er kennt á Reykjum í Ölfusi, skólinn er staðsettur fyrir ofan sundlaugina í Hveragerði.