Farmers Market er íslenskt hönnunarfyrirtæki, stofnað 2005 af hjónunum
Bergþóru Guðnadóttur hönnuði og Jóel Pálssyni tónlistarmanni.

Innblástur er sóttur í ræturnar; íslenska arfleið, náttúru og menningu svo úr verður vörulína þar sem klassísk norræn hönnunarstef kallast á við mínímalískan módernisma þar sem sveitarómantíkin er aldrei langt undan.

Sjálfbærni, notagildi og virðing fyrir umhverfinu eru leiðarstef fyrirtækisins en fatnaðurinn hentar við fjölbreytt tilefni, útivist til jafns við borgarlíf.

Við staðsetjum okkur á krossgötum, skurðpunkti þar sem fortíð mætir nútíð, hið þjóðlega mætir hinu alþjóðlega og sveitin mætir borginni.  Okkur þykir spennandi að bræða saman þessa heima.

ATTIKK sérhæfir sig í að flytja inn, kaupa og selja notaðar hágæða merkjavörur. Allar vörur sem að fara í sölu hjá Attikk hafa verið vottaðar af sérfræðingum til þess að tryggja sanngildi. Hjá Attikk finnur þú vörur frá hátískumerkjum eins og Louis Vuitton, Chanel, Gucci, Prada og fleirum.
Við fundum Endurstilla